Enn og aftur - nýjar myndir !
26. september 2009
Við erum alveg ótrúlega léleg við að pósta einhverju hingað. Það er bara svo erfitt þegar maður getur sett eitthvað í status á facebook.
En myndaalbúmið finnst okkur kannski ekki alveg eiga heima á facebook og þess vegna var því komið fyrir hér.
Og talandi um myndaalbúm þá vorum við að enda við að setja inn á það tvö ný albúm.
Annarsvegar albúmið Aftöppun litlu vélar, en við föttuðum það um daginn að litla vélin okkar var orðin full og við ekki búin að tappa af henni síðan við tókum hana með okkur upp á deild þegar Sigríður Dúa fæddist. Og hinsvegar myndir frá því í ágúst.
![]() |
| Úr albúminu Myndir af litlu vél |
![]() |
| Úr albúminu Ágústmánuður |




