Random header image at Bin Bo & Litla Skott

Afrakstur næturinnar

Afrakstur næturinnar

3. febrúar 2009  |  Inniheldur tögin:  |  6 Comments

Skellti í rúgbrauð í gærkvöldi. Notaðist eingöngu við mjólkurfernur við seinustu sort en núna prófaði ég áldósir með þessum líka fína árangri.

Svo það var farið í búð í dag til þess eingöngu að kaupa álegg á rúgbrauðið. S.s. síld, smjör, kindakæfu, lifrakæfu ofl.

En hér ber að líta á afrakstur tæpa 10 stunda baksturs.

Responses

  1. Árni Theodór Long says:

    febrúar 4th, 2009at 12:28 e.h.(#)

    Þetta lýtur vel út, maður ætti kannski að skella í ofninn um helgina. Notarðu uppskriftina sem er aftan á rúgmjölspökkunum? Mér finnst sú uppskrift alltaf best.

  2. Brynjar Ýmir says:

    febrúar 4th, 2009at 1:18 e.h.(#)

    Vissi ekki að uppskriftin væri að finna aftan á rúgmjölspokunum ?!

    Hef annars notað uppskriftina úr Matnum Okkar eftir Nönnu Rögnvalds. Bara muna að setja aðeins meira sýróp en talað er um í uppskriftinni, gefur herslumuninn ;)

    Mæli svo miklu frekar með áldósum frekar en mjólkurfernum.

    Bíð spenntur eftir afrakstrinum hjá þér !

  3. Gummi Ben says:

    febrúar 4th, 2009at 2:09 e.h.(#)

    Þið eruð nú alveg frábærir. Mikið á litli bumbubúinn eftir að verða glaður að koma í heiminn og háma í sig þrumara :) Þetta lítur geðveikt vel út hjá þér Brynjar og ekki skemmir árekstraprófunarborðinn fyrir :)

  4. Brynjar Ýmir says:

    febrúar 4th, 2009at 6:06 e.h.(#)

    Já.. þetta eru náttúrlega sönnunargögn ;)

  5. Árni Theodór Long says:

    febrúar 5th, 2009at 10:24 e.h.(#)

    Já verður að vera viðmið.

    Ertu að tala um súperdósir eða?

  6. Brynjar Ýmir says:

    febrúar 6th, 2009at 12:07 f.h.(#)

    Keyptar í IKEA seinnihluta seinasta árs, þ.e. skömmu fyrir f.Kr.

    Hef annars heyrt að Macintosh dósirnar (helst þessar gömlu) hafi reynst ömmunum lang best hérna í denn.


Dagatal

febrúar 2009
Þ Mi Fi L S
« nóv.   apríl »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
232425262728  

Gamalt efni