Pylsupartý
15. febrúar 2009 | Inniheldur tögin: , Björg, facebook, matur, Myndir, partý, vinir
Björg fór norður á Hofsós með skólanum á föstudaginn.
Um kvöldið skellti ég mér yfir til Gumma P í úrvals pylsuparty þar sem við ákváðum að endutaka leikinn frá því árið 1999 þegar við sameinuðum allan vasapeninginn okkar einn daginn til þess að gera ógleymanlegt pylsupartý.
Beikonvafðar pylsur, gular baunir, bakaðar baunir og fleira var á boðstólnum ásamt Pro og PS3.
Kvöldið endaði svo á ansi skemmtilegri bæjarferð.
Myndir frá eftirfarandi viðburði er hægt að nálgast á Facebook sem og í Albúminu !


