Aðalvík
10. ágúst 2009 | Inniheldur tögin: , Aðalvík, Frí, Myndir, Sigríður Dúa, Sumar | 4 Comments
Um verslunarmannahelgina gerðum við okkur lítið fyrir og skelltum okkur í Aðalvík í boði Helga Steinars. Virkilega afvikinn staður þar sem hvorki náðist í útvarp né heldur GSM samband. Lögðum í hann frá Bolungavík eftir að hafa fengið gistingu að Skriðu hjá Gumma og Valdísi kl. 14 og við tók 2 tíma bátsferð. En þegar í Aðalvíkina var komið urðum við að færa okkur yfir í gúmmibát með aftanímótor og taka síðasta spölinn í land. Sjaldan farið eins vel um þá stuttu en úti á sjó.
Gekk ljómandi fínt enda gott í sjóinn.
Hægt að sjá hvar við vorum:
Og svo eru náttúrulega myndir !
![]() |
| From Brynjarymir.net/myndir |




ágúst 11th, 2009at 8:56 f.h.(#)
Þetta er mjög flott síða hjá ykkur!
Ég var einmitt að lesa um Ecto í fyrradag, en það var hins vegar allt annað Ecto sem tengist tónlist og söngkonunni Happy Rhodes.
ágúst 11th, 2009at 9:20 f.h.(#)
Glæsileg síða elsku fólk. Sigríður Dúa er dásamleg og yndisleg. Gæti étið hana!
ágúst 11th, 2009at 11:58 f.h.(#)
vá þessi lopapeysu mynd væri alveg tilvalin framan á prjónablað.
dúllur!!!
ágúst 18th, 2009at 7:20 e.h.(#)
Var að skoða myndirnar frá aðalvík! Stúlkan er náttúrulega yndiisleg í alla staði og ég segi það hér með að ég ætla aldrei aftur ekki að koma í aðalvík!
Vona að það verði svona dásamlegt fólk og enn fleiri fögur vinabörn!
Hlakka svo til að hitta ykkur! Kem 12. sept og verð til 27. sept!