Tíminn flýgur
21. ágúst 2009 | Inniheldur tögin: , fjölskyldan, Myndir, Sigríður Dúa
Fórum með Sigríði Dúu í sprautu á þriðjudaginn og fengum með okkur frábæran aðstoðarmann sem söng fyrir Dúu litlu allan tímann svo hún grét lítið sem ekki neitt.
Svo eftir sprautuna var ekki annað hægt en að koma við og kaupa ís handa aðstoðarmanninum okkar en á leiðinni í búðina var aðstoðarmaðurinn ekkert alltof sáttur við það hvernig húfan sat á barninu, við bentum honum bara á það að það væri ábyggilega allt í lagi þar sem hún á það til með færast örlítið til þegar hún er að snúa hausnum í barnabílstólnum.
Svo þegar heim var komið sprakk Binni gjörsamlega úr hlátri þegar hann fór að koma henni úr bílnum en þá var ástandið svona, hún steinsofandi og með húfuna nánast öfuga á hausnum.
Skelltum okkur svo í Torfufellið daginn eftir þar sem hún fékk að fá að fara í fyrsta skiptið á háhest og brasa niðri í kjallara með afa.


