26. september 2009 by Brynjar Ýmir | No Comments
Við erum alveg ótrúlega léleg við að pósta einhverju hingað. Það er bara svo erfitt þegar maður getur sett eitthvað í status á facebook.
En myndaalbúmið finnst okkur kannski ekki alveg eiga heima á facebook og þess vegna var því komið fyrir hér.
Og talandi um myndaalbúm þá vorum við að enda við að setja inn á [...]
21. ágúst 2009 by Brynjar Ýmir | No Comments
Fórum með Sigríði Dúu í sprautu á þriðjudaginn og fengum með okkur frábæran aðstoðarmann sem söng fyrir Dúu litlu allan tímann svo hún grét lítið sem ekki neitt.
Svo eftir sprautuna var ekki annað hægt en að koma við og kaupa ís handa aðstoðarmanninum okkar en á leiðinni í búðina var aðstoðarmaðurinn ekkert alltof sáttur við [...]
10. ágúst 2009 by Brynjar Ýmir | 4 Comments
Um verslunarmannahelgina gerðum við okkur lítið fyrir og skelltum okkur í Aðalvík í boði Helga Steinars. Virkilega afvikinn staður þar sem hvorki náðist í útvarp né heldur GSM samband. Lögðum í hann frá Bolungavík eftir að hafa fengið gistingu að Skriðu hjá Gumma og Valdísi kl. 14 og við tók 2 tíma bátsferð. En þegar [...]
15. febrúar 2009 by Brynjar Ýmir | No Comments
Björg fór norður á Hofsós með skólanum á föstudaginn.
Um kvöldið skellti ég mér yfir til Gumma P í úrvals pylsuparty þar sem við ákváðum að endutaka leikinn frá því árið 1999 þegar við sameinuðum allan vasapeninginn okkar einn daginn til þess að gera ógleymanlegt pylsupartý.
Beikonvafðar pylsur, gular baunir, bakaðar baunir og fleira var á boðstólnum [...]
3. febrúar 2009 by Brynjar Ýmir | No Comments
Fékk þetta líka flotta flass á myndavélina frá minni í jólagjöf svo það var engu til sparað hvað varðar myndatökur yfir hátíðarnar.
Lundarnir komu auðvitað til landsins og voru með okkur yfir áramót og svo auðvitað til þess að fagna stórafmæli „foringjans“.
Bumbubúinn okkar Bjargar virðist ætla að verða jafn aktífur og pabbi sinn þegar hann var [...]
16. nóvember 2008 by Brynjar Ýmir | 3 Comments
Björg skellti sér til Parísar eldsnemma á föstudagsmorgun með Kórnum. Svo ég hef getað horft á allar myndirnar sem ég hef stungið upp á gegnum tíðina en ekki fengið nægilega mikinn hljómgrunn.(broskall)
Það stefndi allt í bekkjapartý hjá bekknum mínum í gær en þar sem fyrsta prófið er á miðvikudaginn var ákveðið að slá gleðskapnum á [...]
3. nóvember 2008 by Brynjar Ýmir | 8 Comments
Held að það hafi aldrei liðið eins langur tími síðan ég hef bloggað án þess að hafa farið í formlega pásu.
Annars hefur margt gerst síðan ég setti inn seinustu færslu. Skólinn er þrælskemmtilegur en um leið ansi krefjandi, góðærið er á enda svo við erum ekki lengur á tveimur bílum hérna á heimilinu svo Möztunni [...]
16. september 2008 by Brynjar Ýmir | 2 Comments
Einbeitingaskortur hefur einkennt skólann hjá mér að undanförnu, ýmsar ástæður sem liggja þar að baki. Annars gengur þetta svona ágætlega eins og staðan er í dag fyrir utan hrikalegasta skilaverkefni sem ég hef á ævi minni séð sem ég hef ekki enn skilað inn þrátt fyrir að fresturinn sé liðinn.
Myndasíðunni hefur verið læst en hægt [...]
11. september 2008 by Brynjar Ýmir | 2 Comments
Þann 8. ágúst buðum við Lundunum ásamt mömmu og pabba í Kjósina þar sem við vorum með tryllta sushigerð með öllu tilheyrandi. Endilega að tjekka á því hérna með því að smella á hlekkinn ellegar að fara í Myndahlekkinn hér að ofan.
Skólinn fer hálftreglega af stað, óttalega eriftt að byrja aftur auk þess er þetta [...]
9. september 2008 by Brynjar Ýmir | 3 Comments
Þá fer allt að verða tilbúið hérna á nýju heimasíðunni, búinn að laga bannerinn hér að ofan auk þess sem ég hef smellt inn upplýsingum af last.fm, flickr-inu og loks dömpaði ég inn myndum af Picasa hérna inn á síðuna. Hægt að skoða það með því að smella á MYNDIR í stikunni hér að ofan. [...]